Krydduð brúnkakaÁrstíð: Jól - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 5315 Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Krydduð brúnkaka. 750 grömm hveiti 450 grömm púðursykur 450 grömm smjör 3 egg 4-5 teskeiðar negull 5 teskeiðar kanill 2-4 teskeiðar engifer 3 teskeiðar natrion Smjörkrem: 300 grömm lint smjör 1-2 egg 1 kíló flórsykur 2 teskeiðar vanilludropar Aðferð fyrir Krydduð brúnkaka: Kalt smjörið mulið fínt saman við hveitið og öllu hnoðað saman. Deiginu skipt í 4 jafna hluta sem eru kældir í um 2 tíma í ísskápnum. Hver hluti er flattur út á smjörsmurða bökunarplötu. Bakað í um 8-12 mínútur. Losið kökuna varlega af plötunni. Setjið hlutana saman með smjörkremi og setjið svo smá rabbabarasultu ofaná smjörkremið. Geymið kökuna í cirka viku í plasti því þá mýkist hún. Smjörkrem: Öllu blandað saman og borið á kökuna. þessari uppskrift að Krydduð brúnkaka er bætt við af Sylvíu Rós þann 23.06.10. Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 37 áskrifendur.
|