KótelettufatÁrstíð: Allt árið - Fyrir: 4 - Fitusnautt: Nei - Slög: 2936 Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Kótelettufat. 4 stórar eða 8 litlar kótelettur Smá hveiti 100 gröm beikon 250 gröm sveppir 3 stórir laukar 1-2 desilítrar kjötkraftur eða rauðvín 1 desilíter tómatpúrra eða 1 dós fláðir tómatar 1 desilíter rjómi Evt. smá steinselja, salt og pipar Meðlæti: Hrísrjón, súpubrauð og salat eða bakaðar kartöflur. Aðferð fyrir Kótelettufat: Bankið kóteletturnar með kjöthamri og veltið uppúr hveiti, brúnið þær svo á pönnu. Leggjið kóteletturnar í smurt eldfast mót. Léttsteikið lauk og beikonbita í potti. Bætið sveppunum í pottinn. Hellið vökvanum í (rauðvíni eða kjötkrafti, tómatpúrru og rjóma) og kryddið með salti, pipar og steinselju. Hellið þessu yfir kóteletturnar. Setjið lok eða álpappír yfir eldfasta mótið og eldið í ofni við 200 gráður í 20-30 mínútur. þessari uppskrift að Kótelettufat er bætt við af Sylvíu Rós þann 19.08.07. Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 37 áskrifendur.
|