Kjúklingahakk með kartöflumúsÁrstíð: Allt árið - Fyrir: 4 - Fitusnautt: Nei - Slög: 4149 Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Kjúklingahakk með kartöflumús. 500 grömm kjúklingahakk 2 gulrætur, rifnar 2 púrrlaukar, gróft saxaðir 150 grömm sellerí rifið 1 dós hakkaðir tómatar 2 matskeiðar tómatpúrra 2 hvítlauksrif, marin 2 matskeiðar olía Salt og pipar Timían, ferskt eða þurrkað Kartöflumús: 1 kíló skrældar kartöflur, í bitum 50 grömm smjör 1 desilítri heit mjólk 2 egg 100 grömm rifinn ostur Salt og pipar Aðferð fyrir Kjúklingahakk með kartöflumús: Hitið olíuna í potti og steikið kjúklingahakkið í nokkrar mínútur. Setjið grænmetið í pottinn og bætið 1 dós af hökkuðum tómötum í. Hellið tómatpúrru og hvítlauk í líka. Setjið lok á pottinn og látið þetta malla í 10 mínútur. Smakkið til með salti, pipar og timían. Hellið þessu í eldfast mót. Hitið ofninn að 200 gráðum. Sjóðið kartöflurnar í gegn. Stappið þær og hellið smjöri og mjólk í. Hrærið þessu vel saman og bætið eggjum og osti í. Smakkið til með salti og pipar. Hellið kartöflumúsinni yfir kjúklingablönduna. Bakið í 25 mínútur, eða þar til kartöflumúsin er gullinbrún. Berið fram með fersku grænmeti. þessari uppskrift að Kjúklingahakk með kartöflumús er bætt við af Sylvíu Rós þann 23.04.08. Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 37 áskrifendur.
|