Glóðaður laxÁrstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 3718 Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Glóðaður lax. 4-6 laxasneiðar 300-400 gröm pasta Krydd: 1 teskeið salt 1 matskeið smjör 1 matskeið timian Sósa: 2 laukar í sneiðum 1 matskeið smjör 2 matskeiðar rósapipar 1 matskeiðar tómatsósa 2 desilítrar hvítvín, má vera óáfengt 1/4 líter rjómi 1 teskeið fiskikraftur 2 teskeiðar ljós sósujafnari Aðferð fyrir Glóðaður lax: Bræðið smjörið og blandið salti og pipar saman við. Penslið laxinn með kryddblöndunni og glóðið í um það bil 5 mínútur á hvorri hlið. Sjóðið pastað eftir leiðbeiningunum á umbúðunum. sósan: Látið rósapiparinn malla í hvítvíninu í 5-10 mínútur. Sneiðið laukinn í þunnar sneiðar og látið hann krauma í smjörinu á pönnu þar til hann verður fallega brúnn. Bætið vínblöndunni, rjómanum, tómatsósunni, og kryddinu út í og sjóðið við vægan hita í u.þ.b. 10 mínútur. eða þar til sósan byrjar að þykkna, jafnið með sósujafnara og kryddið meira eftir smekk. Berið fram með laxinum og pasta. þessari uppskrift að Glóðaður lax er bætt við af Elinborg Baldvinsdóttir þann 21.08.07. Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 37 áskrifendur.
|