Eggs BenedicÁrstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 6749 Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Eggs Benedic. 4 English muffins (eða 8 brauðsneiðar) 2 matskeiðar smjör 8 þunnar sneiðar af hamborgarahrygg 1 teskeið edikk 8 egg Salt, pipar og cayennepipar Hollandaisesósa Aðferð fyrir Eggs Benedic: Skerið 4 english muffins í tvennt, ristið og smyrjið. Setjið á fjóra diska og haldið þeim heitum. Léttsteikið kjötið á pönnu. Setjið vatn í pott og blandið edikki útí, látið sjóða. Setjið eggin í vatnið, eitt í einu og látið sjóða í 3 mínútur. Setjið eina hamborgarahryggssneið á hvern english muffin helming. Setjið eggin líka á þegar þau eru tilbúin. Hellið hollandaisesósunni yfir og kryddið með salti, pipar og cayennepipar. Berið fram eins heitt og mögulegt er. Ráð: Ef maður er óvanur í eldhúsinu er líka gott að kaupa bara tilbúina sósu og bæta eggjarauðu útí, það geftur meira bragð. Það er einnig gott að bæta 1-2 matskeiðum af hvítvínu í. Það er hægt að nota 8 brauðsneiðar í staðinn fyrir english muffins. þessari uppskrift að Eggs Benedic er bætt við af Sylvíu Rós þann 15.08.07. Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 37 áskrifendur.
|