Amerískar smákökurÁrstíð: Jól - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 9740 Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Amerískar smákökur. 100 grömm smjör 1/2 desilítri sykur 1/2 desilítri púðursykur 1 egg 1/2 teskeið matarsódi 3 desilítrar hveiti 1/8 teskeið salt 3 matskeið heitt vatn 150 grömm saxað suðusúkkulaði 1 desilítri saxaðar möndlur eða hnetur Aðferð fyrir Amerískar smákökur: Hitið ofninn í 180 gráður. Hrærið sykur og smjör þar til hræran verður létt og ljós. Bætið egginu í. Blandið saman hveiti, matarsóda og salti og hrærið út í. Blandið að lokum súkkulaði, vatni og hnetum saman við. Setjið degið með teskeið á bökunarplötu og bakið í u.þ,b. 10 mínútur. Geymið í loftþéttu boxi á köldum stað. Ef degið þarf að standa einhverja stund áður en það fer í ofninn, er betra að blanda súkkulaðinu og hnetunum saman við hveitið svo það sígi ekki til botns í formunum. Fyrir þá sem eru með hnetuofnæmi má sleppa þeim og setja til dæmis döðlur í staðinn. þessari uppskrift að Amerískar smákökur er bætt við af Elinborgu Baldvinsdóttur þann 12.12.07. Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 37 áskrifendur.
|